535 – 1000

Nýbyggingar


Nálægðin við iðandi mannlíf miðborgarinnar setur Skuggahverfið í flokk eftirsóttustu hverfa borgarinnar.

Stutt er í alla þjónustu; verslanir, veitingastaði, skóla, heilsugæslu og afþreyingu af ýmsu tagi.

Menningin blómstrar í miðborginni og það að búa í göngufæri við leikhús, kvikmyndahús og tónlistarhús býður upp á einstaka möguleika. Fjölmörg kaffihús og fjölbreyttir veitingastaðir eru í næsta nágrenni og því nánast öruggt að allir finna eitthvað við sitt hæfi þegar kemur að mat og drykk.

Frá Skuggahverfinu er stutt í margar helstu perlur miðborgarinnar; gömlu höfnina, tjörnina, Hljómskálagarðinn, Skólavörðuholtið og Austurvöll.
Sjá lista af eignum.